9.1.06

Jæja nú er ekkert sem heitir lengur

og skólinn er byrjaður. Ég hafði það þrusugott öll jólin, náði meirað segja að bæta aðeins á mig held ég bara. Skólinn leggst bara vel í mig og ég er spenntur að fá að takast á við eitthvað nýtt. Það er ekkert gaman að taka sömu önnina tvisvar þar sem maður ekki að sjá eitthvað nýtt.

Það var ansi margt sem ég náði að gera með því að sleppa lokaverkefninu sem ég var að vísu búinn að ná í fyrra. Planið var að fara aftur í það til þess að læra meira en fjárhagsstaðan leyfði það engan veginn. Ég náði í fyrsta lagi að halda gleðileg jól og í öðru lagi keypti ég mér nýjan bíl. Það er mjög gott að ljúka því af strax en annars hefði ég þurft að skila Getzinum í byrjun marz og þá að finna mér nýjan bíl. Skólinn hefði ekki boðið uppá það tímalega séð.

Áramótaheiti og ekki heiti, ég er farinn í grennslu. Það er svo kellingalegt að segja megrun svo ég kalla það grennslu, það seinasta sem ég vil er að láta bendla mig við er að vera kellingalegur... Planið er að missa 25 kíló og líta út eins og prik (ekki Prikið heldur bara eitthvað prik). Samkvæmt mínum útreikningum ætti ég að vera dönn um miðjan maí. Á þessu fæði má alveg gera ráð fyrir að ég missi kíló á viku og mér reiknast það þannig út að einhvern tíman í maí verði ég tilbúinn. Ég og Örvar vinnufélagi minn erum í veðmáli hver missir meira og ég er nokkuð sigurviss þar sem hann hikar ekki við að fá sér sveitt hamborgaratilboð þegar honum hentar. Sá sem tapar þarf að borga fyrir hinn golfhring uppá Kiðjabergi fullar 18 holur, leigja golfbíl og kaupa bjór á milli 9 og 10 holu. Semsagt það er kannski einhver 5000 kall í húfi, það er nú kannski ekki svo mikið en fyrir námsmann eins og mig er það heill hellingur.

Jæja en allavega æm bekk tú ðe blogg og ég ætla að hafa þetta með hefðbundnu sniði bara þessa önnina. Það er að koma matur svo ég bið að heilsa í bili. Fyrir forvitna sem vilja vita hvað er í matinn þá er það svínasnitsel, fínt megrunarfæði það. Og fyrir þá sem ekki vita má gera fínyndis steikur hollar ef maður passa sig bara á því hvernig það er eldað og hvað er haft með því..

BT

30.11.05

Partýið var alveg ágætt

og svo var farið í bæinn. Slappleikinn var allsráðandi og ég fékk mesta hausverk sem ég hef fengið á ævinni eftir að ég dröslaðist á fætur, það má segja að ég hafi ekki haldið andlitinu vegna kvala, mjög mikill hausverkur semsagt. Hann var ekki fyrr farinn þegar ég var farinn að hella í mig aftur í fordrykknum hjá Rikka fyrir árshátíð Almenna bílaverkstæðisins, mjög fínt geim það...

Ég hef sett inn eitthvað af myndum og það nýjasta er af árshátíðinni, þær eru hér til hliðar undir "Fleiri myndir".

Annars er ég bara farinn að vinna aftur og sjáum til með hve mikið þessa síða verður virk á meðan...

BT

20.11.05

Partý Partý

já það er all langt síðan að hrist hefur verið upp í liðinu á efri hæðinni svo ég hef ákveðið að halda partý hérna á föstudaginn. Það að sjálfsögðu verður að halda uppá það að prófin séu búin en seinasta prófið er einmitt á föstudaginn á milli 14:00 og 17:00.
Það þarf því enginn að velta því fyrir sér hvort ég fari beint heim að opna mér bjór...

Því má gera ráð fyrir sveittri stemningu hérna á föstudaginn.

ég er búinn að bjóða Bjarne Stroustrup nú er bara fyrir restina að láta sjá sig..

19.11.05

bara svona aðeins til skemmtunar



það má vel búast við því að ég verði svona kátur þegar prófin eru búin og það þarf ekki að koma neinum á óvart ef ég bara hreinlega kátari ef ég næ stærðfræðinni.

BT

18.11.05

Jæja nú hefur ákvörðun verið tekin...

..um að sleppa verklega námskeiðinu sem ég ætlaði að taka í desember, það kemur aðallega til vegna peningaleysis. Ég er búinn með þetta fag en ég náði því í fyrra með naumindum en mig langaði að taka það aftur og ætlaði að gera það því þetta er gaman og maður lærir alveg mega mikið á þessu. Það er bara ekki tekið út með sældinni að vera í skóla peningalega séð og því eftir miklar vangaveltur og nokkra fundi með námsráðgjafanum mínum henni Jane þá var það ákveðið, þar sem ég fæ vinnu í desember, að fara bara að vinna. Ég nebblega þarf að kaupa jólagjafir eins og aðrir en það hefði ekkert verið í boði ef engir peningar kæmu inn.

Vegna þessa stefnir allt í gleðileg jól hjá mér og minni. Það verður bara unnið sirka 8 tíma á dag og farið svo heim að undirbúa jólin saman sem er gaman. Bara að taka því rólega sem hefði annars ekki verið í boði því þetta verkefni er mikið streð sérstaklega undir lokin.

Próf númer 2 af 4 er á eftir klukkan 14:00 og tel ég mig þokkalega undirbúinn fyrir það. Svo næst í röðinni er það stærðfræðin sem ég á litla sem enga von með að ná en ég er búinn að díla við 2 kunningja mína að taka mig undir þeirra verndarvæng og leiða mig að (stærðfæði)ljósinu. Annar þeirra ætlar að eyða með mér helginni á afskekktri stærðfræðieyju en hún er staðsett í miðjum Bermúda þríhyrningnum þar á ég von á því að ná kannski einhverjum fykjum og föllum. Hinn ætlar að eyða með mér öllu mánudagskvöldinu og fara með mig í innstu og dýpstu stærðfræði fylgsni hugans ég vona bara að ég sleppi þaðan lifandi aftur. Það yrði sko hátíð í bæ og ástæða til að fagna ef ég næði nú bara 5 í þessu helvíti. Ef ekki þá er bara að taka því eins og maður og annað hvort að læra um jólin eða taka hreinlega bara sumarönn ef sé í boði að taka stærðfræðina þar. Sjáum til með þetta allt saman.

Jæja ég bið að heilsa í bili, og þið sem eruð að VINNA brosið framan í heiminn og þakkið fyrir að þurfa ekki að taka stærðfræðipróf og þakkið líka fyrir að fá útborgað ;)
BT

15.11.05

Blogg númer 100

talandi um skrítið fólk, ég fór í ræktina áðan og hvern haldið þið að ég hafi séð? Það var enginn annar en meistari meistaranna Quentin Tarantino. Hann er nú soldið skrítinn en svona svalur skrítinn, greinilega endalaust stuð í laugum alltaf. Hann var eldrauður í andlitinu eins og hann væri búinn að rækta fyrir allan peninginn (sá hann bara í andyrinu). Annars er ekkert meira skrítið fólk sem ég hef séð undanfarið sem ég man eftir.

Búinn með eitt próf af fjórum og ég er nokkuð viss um að hafa náð því, án þess að vera öruggur þó. Næsta próf er á föstudaginn og það er svona þægilegasta fagið eiginlega bara lestrarfag með smá föndri. Vonandi að það fari bara vel.

Bið að heilsa í bili, BT

11.11.05

Skrítið fólk

er eitthvað sem ég hef mjög gaman að. Skrítið fólk, þá er ég að tala um fólk sem soldið öðruvísi en við hin sem teljum okkur eðlileg. Allt mitt fólk og Röggu fólk er fólk sem ég tel eðlilegt en svo er fólk eins og er í mjóddinni sem er skrítið og það var að bætast við annar staður sem mikið magn af skrítnu fólki finnst en það er "steina" potturinn í Laugardalslauginni. Ég fór einn í sund á miðvikudaginn, en það er fyrsta skipti sem ég fer einn í sund. Ég synti nokkrar ferðir og svo fór ég að sjálfsögðu að slappa af í pottinum. Ég gat samt ekkert slappað af því ég var svo upptekinn af öllu skrítna fólkinu. Þeir sem fara stundum í mjóddina vita nákvæmlega hvernig fólk ég er að tala um. Meirað segja pabbi styður mig í því að það er skrítið fólk í mjóddinni svo er mamma sem þykist ekkert vita hvað við erum að meina, ætli hún sé ekki bara svona góð að hún vill ekki blanda sér í svona umræður. Bara á meðan ég var að hugsa og skrifa þetta sem ég er búinn að vera skrifa þá var ég að muna eftir nýjum stað sem mikið magn af skrítnu fólki fer á en það er Rangá. Svo er yfirleitt vond lykt af þessu fólki líka.

Fyrir ykkur sem hafa ekki hugmynd um hvað ég er að tala um skellið ykkur í mjóddina í hádeginu einhvern daginn þá fáið þið sko "eitthvað fyrir peninginn".

BT